4.12.08

Það er allt á fullu alls staðar

Árlegur kleinu- og flatkökubaxtur fjölskyldunnar verður á laugardaginn í mínu eldhúsi. Ég hlakka rosalega til, því mér finnst svo gaman að hittast svona.
Mér finnst líka gaman að eiga svo stórt eldhús að jólabaxtur heillar fjölskyldu geti farið þar fram.
Í gær var ég að sparstla inn í gluggana í eldhúsinu og stofunni, svo það á allt að vera orðið rosalega fínt á laugardaginn. Hver veit nema það verði komin jólasería???

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleymdir að geta þess að pabbi þinn er að fylla kalkúninn og það á að þakka fyrir það að við erum öll heil og getum hitst og verið saman, gaman. Ég hlakka líka til. Ég hlakka til þessarar helgar eins og ég hlakkaði til jólanna þegar ég var smáari. Mammamma.