20.9.08

Kallinn kominn...

...og farinn aftur.
Já lífið gengur sinn vana bara.
Ég fæ 50% vinnu áfram þar til nýtt stöðugildi verður óumflýjanlegt.
Það er mjög gott.

Krakkarnir eru ánægðir í skólanum. So far so good.
Þau eru öll búin að lenda í slagsmálum. So far so good.
Þau eru öll komin á fullt í íþróttir. Stormur og Ormur í júdóið og Gormur ákvað að prófa fimleika. Doppa er byrjuð í leikskólanum. Hún er í skýjunum.

Kettlingurinn okkar eignaðist tvo kettlinga og við eignuðumst líka hálfstálpaðan hvolp.
Svaka stuð í sveitinni bara.
Ég elska að vera til.
Og nú eru bara 45 dagar þar til gamli minn kemur aftur heim.