25.11.08

Brjálað að gera og svona...

Við hjónin erum búin að vera að standsetja forstofuna okkar. Það er ofsalega gaman. Tekur langan tíma, en verður æðislegt þegar það er búið.
Það er eitt svoldið merkilegt sem við erum bara alveg steinhissa á.
Það eru ofsalega margir í þessu litla þorpi búnir að skreyta húsin sín fyrir jólin.
Þegar ég segi skreyta, þá er ég ekki bara að tala um smá jólaseríu undir þakskegginu.
Nei, það eru hérna nokkur hús sem eru með jólaseríu í öllum gluggum, allan hringinn á þakkantinum og jólafígúrur og allskyns dóterí út um allt.
Og það er ekki einu sinni kominn 1. aðvetnusunnudagur.
Já, við erum bara alveg steinhissa...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ og hó þið búið nú í þorpi sem oft er nefnt Jólalandið ekki satt?
Hér heima eigum við langa útiseríu sem þið megið gjarnan fá og einni fullt af einhverju ljósadóti í glugga. Endilega skoðum úrvalið áður en farið er að versla glingur til að vera í stíl við þorpsbúa. Ástarkveðjur úr sveitinni.