Eins og þú veist þá er ég með tvo hvolpa á heimilinu. Einn blandaðan rakka íslenskan og labrador, sem er 9 mánaða, og svo hreina labrador tík sem er 3 mánaða.
Fyrir átti ég tvær læður sem eru eins árs núna í desember.
Önnur læðan fann náttúruna um leið og við fluttum úr bænum, og hún gaut tveimur kettlingum í ágúst. Nákvæmlega 3 mánuðum síðar gaut hún þremur í viðbót.
Svaka dugnaður í henni blessaðri. Þeir fæddust í síðustu viku.
Við vorum að vinna niðri í forstofu, og ég sá að hún var að fara að gjóta.
Ég fór því með hana upp í kassann sem ég var búin að finna fyrir hana.
Þar var auðvitað orðið rusl í, alls konar lök og drasl. Ég tók það og kastaði því í næstu hillu.
Þá trylltist læðan alveg og fór að róta í ruslinu.
Þegar ég fór að athuga málið, þá var hún búin að gjóta í tuskuhrúgunni, og ég tók kettlinginn með öllu saman og kastaði honum út í horn.
Það var óvart.
Hin læðan er komin að goti líka. Þetta verða skemmtileg jól.
Fullt fullt fullt fullt af dýrum.
Vá hvað ég er heppin!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Vá það er greinilega mikið fjör við ströndina. Vonandi fer ég að ná að draga mig út og koma í heimsókn til ykkar. Orðið allt of langt síðan ég hef hitt þig.
kv.
Steinunn
Ég vildi líka vera hjá ykkur, ekki bara í heimsókn, heldur bara í allt um vefjandi ást ykkar. Love mammamma.
Skrifa ummæli