Kyssti og knúsaði þrjá grislinga fyrir háttinn og skreið svo uppí hjá þeim fjórða.
Vaknaði þunn í morgun. Höfuðverkur, munnþurrkur, augnsviði, ógleði, þreyta.
Mig rekur samt ekki minni til þess að ég hafi nokkuð drukkið í langan tíma.
Að minnsta kosti ekki í gærkvöldi.
Núna sit ég upp á sjúkrahúsi.Búin að vinna minn hluta vinnunnar, og þá er bara að bíða eftir áliti læknisins.
Þynnkan er að mestu rokin úr mér.
Sem betur fer.
Það er ömurlegast í heimi að drekka ekki, en verða samt þunnur.
Ætli það sé til eitthvað læknisheiti yfir það?
Kannski bara pest, eða flensa eða þreyta...
1 ummæli:
Þú verður bara að fara að drekka þá skilurðu af hverju þú ert svona þunn. Nei annars þú ert best svona eins og þú ert, en þú VERÐUR að gæta að eigin heilsu, ég hef margoft sagt þetta og segi það enn. Ég þekki af eigin reynslu hvað það er að missa heilsuna vegna álags og hún kemur ekki aftur að fullu, það get ég því miður sagt þér líka. Ástarkveðjur og FARÐU VEL MEÐ ÞIG!!!!!!!!!!!!!Mammamma
Skrifa ummæli