Það er alltaf yndislegt þegar sumarið kemur. Gott veður, og allir eru svo bjartsýnir og kátir.
Haustinu er samt tekið með gleði, því þá kemur aftur reglan og allt dettur aftur í fastar skorður.
Skólinn er settur í næstu viku. Ég er ekki að fara í skólann. Í fyrsta sinn síðan guð má vita hvenær. Núna fylgi ég bara börnunum.
Doppa byrjar á leikskólanum í september og hún hlakkar hrikalega til. Er búin að vera að spyrja um leikskólann síðustu vikur. Finnst það spennandi.
Svo kemur kallinn heim í tveggja vikna leyfi í enda mánaðarins.
Það er auðvitað aðal málið.
Smá óregla í allri reglunni sem verður þá komin á lífið...
Ég hlakka til.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ég er svo sammála þér. Er farin að hlakka til að vetrarregla komist á eftir sumaróregluna.
Sigga móður......
Skrifa ummæli