Góðar fréttir!
Ég er búin að kaupa borðplötu. Ég keypti gegnheila beykiplötu. Hún er F-L-O-T-T!
Núna er verið að klambra saman stiganum og svo verður rafmagnið dregið í. Þá vantar bara eina smá sturtu, og svo flyt ég inn. Já það er nú það. Þetta er alveg að gerast og djöfull er ég spennt. Annars kemst lítið annað en lokaverkefnið mitt að.
Einfaldar stærðfræðiformúlur þvælast fram og aftur um kollinn á mér og meika ekkert sens. Hlutir eins og að setja upp í veldi, taka kvaðratrót og reikna hlutföll eru meira að segja orðin mér um megn. Mig dreymir að ég uppgötvi svakalega flóknar formúlur og reikni ferlega erfið og stór dæmi. Svo þegar ég vakna og ætla að skrifa lausnina hjá mér og massa þetta, þá er það bara eitthvað rugl.
Ferlega svekkjandi
En samt hrikalega fyndið.
Í morgun vaknaði ég með lausnina og skrifaði hjá mér:
100 * 9 = 900
kvaðrat af 9 = 3
Snilld!
Finnst þér ekki?
Spurning hvort ég fæ að útskrifast?
Neeeh...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gangi þér vel Þóra mín, bæði með ritgerðina, húsið og allt.
Þú gætir alveg leitað til mín ef þú þarft að leysa mjög flóknar stærðfræðiþrautir eða manst ekki formúlur........ eða þannig sko.
Sigga móður......
Skrifa ummæli