Kallinn er búinn að vera sveittur að smíða þennan líka fína stiga.
Nú er hann tilbúinn með handriði og alles, svo þið sem eruð lofthrædd getið loxins kíkt upp á loft.
Pabbi kom í gær og skellti einu stykki handriði á stigagarminn. Gott að hafa gamlann að hjálpa til. Hann er svo assgoti vandvirkur. Sumir myndu segja fullkomnunarárátta, en ég fullyrði ekkert á opinberum vettvangi.
Það er að minnsta kosti gott að hafa hann.
Það er mikið sem á eftir að framkvæma áður en karlinn (minn) hverfur aftur til starfa, eftir tæpan mánuð. Svo það veitir ekkert af því að taka þeirri hjálp sem býðst með þökkum.
Annars er skemmst frá því að segja að stærðfræðikunnáta mín hefur bestnað all mikið frá síðustu færslu. Það sést best á því að lokaritgerðin er farin að "meika sens", og það á íslensku.
Verð í því næstu daga að klára hana og koma frá mér.
Lifið heil
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
ég verð nú að fara að koma og skoða hjá ykkur. Hef ekki séð þetta síðan þetta var bara grunnur hehee
Kv. Tinna
frábært, fer sko að koma skoða fyrst ég kemst orðið upp ;o)
Steina beina
Prófarkalesarinn er í startholunum :)
Baráttukveðjur! Guðný Ingvars
Takk Guðný.
Ég vanda mig einmitt sérstaklega og huxa við hverja setningu:"Hvað ætli hún Guðný muni segja við þessu?"
Skrifa ummæli