7.4.08

Vikulegt blogg

Það er það sem þetta er orðið. Bara einu sinni í viku, give or take.
Ég er komin aftur af stað í ræktina eftir frekar ríflegt páskafrí. Mæti núna kl. 6.15 og púla af mér rassinn(vonandi) áður en ég fer heim að koma liðinu af stað í skólann. Það er lúxus að hafa kallinn heima til að draga krakkana fram úr, því það er nú ekki á topp 10 listanum mínum.
Um helgina var verið að draga rafmagnið í húsinu, og ég var að pússa stigann minn nýja. Í vikunni ætla ég svo að olíubera hann með forláta rauðbrúnum lit sem ég verslaði mér. Ég hlakka mikið til að sjá hvernig hann verður á eftir.
Annars er þetta bara ritgerðin áfram. Planið núna er að koma henni frá mér til leiðbeinanda, og opinbers prófarkalesara (Það er yfir sílið sko...) eftir tvo daga. Úff úff, vonandi tekst mér það. Þetta er dáldið líkt húsbyggingaplönum. Maður áætlar sér rúman tíma því maður veit að það er alltaf lengur en maður heldur, og svo fer maður langt langt framúr þeim tímamörkum. HAHA...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Áfram stelpa. Ég stend með þér og reyni að hjálpa þér með hugarorkunni. Veit ekki hvort það virkar en það má reyna.
Sigga móður......