Ég er heima hjá mér í dag, og ætla að nota daginn í ritgerðarsmíð. Hef verið með manni mínum og börnum að smíða á fullu síðustu daga.
Við erum að verða búin að græja eldhúsinnréttinguna upp. Lentum reyndar í hrikalegri krísu vegna borðplötunnar. Vonandi leysist það fljótlega, því það vantar óneitanlega heilmikið án hennar.
Er andlaus, enda hugurinn fyrir austan í gipsuppsetningu og málningarvinnu.
Þarf samt að klára ritgerðina, helst í þessari viku, því nú er akkúrat mánuður í skilin.
Sendið mér góða strauma.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Straumur, straumur, straaaauuuuumur, straumur, sítengi komið á. Ástarkveðja mammamma ennþá heima, en það fer nú að lagast.
Skrifa ummæli