Hún Doppa mín er lasin. Voða skrýtin, alltof róleg og hitaleg. En stríðnin er ekkert minni, þótt hún sé slöpp.
Ég lá hjá henni áðan á meðan hún var að sofna. Við vorum að hlusta á útvarpið og hún var mjög slök og ánægð með sig. Raulaði með og boraði dáldið í nefið.
Ég fór að stríða henni, tók puttann á henni og potaði í nefið hennar. Oj oj oj... Hún hló.
Svo stakk hún puttanum á kaf í nösina, stakk honum upp í sig, brosti og sagði: namm namm, epla!
Svo stakk hún puttanum á kaf í hina nösina, stakk honum svo upp í sig og sagði: namm namm, appelsínu!
Svo hló hún alveg eins og bavíani, og ég líka auðvitað...
Dásamleg Doppa
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
haha bara frábær!! Verður greinilega alveg sama bullukollan og mamma sín :o)
kv. Steina beina
Bwahahahahaha !!
Litli snillingurinn :D
Sóley
Skrifa ummæli