11.3.08

Pæla og planleggja

Það er mottó lífs míns þessa dagana.
Allir eru komnir með pössun, líka kettlingarnir. Þá er bara að pakka rétt niður fyrir alla. Fermingarveisla hér og júdómót þar. Það er víst nóg að gera þótt ég bregði mér af bæ í nokkra daga.
Lokaverkefnið er á fullum sving.
Ég er komin með öll gögnin, og núna joggla ég þeim fram og til baka í excel til að skoða hvernig best er að fá einhverja sniðuga niðurstöðu.
Það verður gaman að sjá.
Og nú eru bara 2 dagar í mitt langþráða rómantíska húsmæðraorlof.
aaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhh..............................

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl mín kæra, er excel og word komið í lag hjá þér. Ástarkveðja mammamma

Nafnlaus sagði...

Og nú ertu úti í rómantíkinni, vertu nú dugleg að work out.. ;o)
Sóley