Nú hækkar sólin og dagurinn lengist smátt og smátt, það munar bara níu sekúndum á deginum í dag miðað við gærdaginn en ég finn muninn. Ég meina það, ég finn muninn.
Í dag er þorláksmessa og þá er borðuð þessi kæsta skata sem er uppáhaldsmaturinn minn í öllum heila heiminum. Á aðfangadag ætlum við að hafa humarsúpu og rjúpur og hreindýr með öllu tilheyrandi og það er alveg næstuppáhaldsmaturinn minn.
Ég get svo varla beðið eftir að gefa allar gjafirnar sem ég er búin að vanda mig svo við að velja og búa til.
Yndislegur tími
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Vona að þið hafið notið jólanna og eigið gæfuríkt nýtt ár.
Sé að við gætum alveg komið okkur saman í eldhúsinu.
Sigga móður......
Bara að nota tækifærið og ítreka það sem ég hef áður sagt : Að opna gjafirnar frá þér og lesa það sem þú skrifaðir, ég fékk alveg tár í augun OG hló mig máttlausa og upplifði mig svoooooo elskaða..!
Elska þig
Sóley
Skrifa ummæli