Hérna er allt að róast í bili. Mikið djöfull er ég fegin.
Við erum ofsalega slök yfir þessum jólaundirbúningi sem allir eru að tapa sér yfir. Ég er ekki búin að skrifa jólakortin, ekki búin að pakka inn gjöfum og ekki einu sinni búin að ákveða þær allar.
Hérna er búið að taka upp nokkra jólakalla og baka fjórar uppskriftir af smákökum, sem eru allar búnar.
Ég er búin að finna þrjár uppskriftir af hveitilausum smákökum sem ég ætla að baka, og það verður gaman.
Gamli minn kemur heim á laugardaginn og er planið að vera búin að koma hans jólagjöf í réttan farveg fyrir þann tíma, enda er leyndin í kring um hana alveg suddaleg.
Annars er hláka hjá honum og þess vegna alveg ómögulegt að komast í næsta bæ. Snjósleðarnir duga skammt þegar heiðin er auð.
En hann taldi í gær að hann þyrfti bara að labba rúmlega 30 km og synda 300 metra á miðri leiðinni til að komast á fæti.
Ég hef trú á því að ég kaupi bara þyrlu ef þetta verður eitthvað vesen. Þið hin fáið þá bara minni jólapakka í staðinn.
Ég þarf að fá hann heim.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Bwahahahahahahha !!
Ég trúi þessu alveg upp á ykkur bæði !!
Þú að kaupa þyrlu og hann að rölta þetta bara og synda.. látið ekki smámuni stoppa ykkur í neinu !!
Þið eruð ÆÐI !! :D
Sóley
Skrifa ummæli