9.12.09

Þar sem ég veit að dóttir mín les ekki bloggið mitt

(enda er ég leiðinlegasta manneskja sem til er í öllum heila heiminum)
verð ég bara að segja, að ég hélt að ég hefði harðan skráp... en mikið ósköp getur þessi þrettán ára unglingur sært mig mikið.
Ég bara gæti grátið
Þetta er verra en ungabarn með eyrnabólgu. Maður getur ekkert gert við eyrnabólgunni, en maður má þó allavega knúsa þau og sýna þeim ást og umhyggju.
Við gelgju-vanlíðaninni er ekkert hægt að gera heldur, og maður má ekki snerta eða segja neitt, því guð forði manni frá því að segja eitthvað vitlaust!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Baráttukveðjur úr Sílatjörninni og afnot af öxl í boði, ef þarf :)
Kv. Guðný Ingvars

Nafnlaus sagði...

Afnot að margnotaðri ömmu ef á þarf að halda-fyrir ykkur báðar. Love, mammamma.

Nafnlaus sagði...

Úff hvað þetta getur verið sárt.. knúsírús

Sóley