6.11.09

Nú kemur önnur langloka, en það er bara leitt fyrir þig, því að ég verð að losna við þetta úr hausnum á mér. Sama þótt það hljómi ömurlega leiðinlega

Í gær gerðist ég hundahatari. Það er ekki víst að ég geti nokkurn tímann framar notið þess að klappa hundi eða fara út að ganga með hund eða hvað sem það er sem fólk gerir til að hafa gaman af þessum kvikindum.

Mínir hundar skíta ógeðslega mikið. Þeir eru alltaf sískítandi. Það er fátt viðurstyggilegra en að taka volgan skít í poka og geyma þar til maður kemst í ruslatunnu.

Mínir hundar þurfa rosalega mikinn félagsskap, þeir eru bókstaflega ofan í mér hverja einustu mínútu sem ég er heima hjá mér. Þeir standa svo nálægt mér að ef ég ætla að snúa við, þá labba ég á hund. Ef ég stend upp, þá lendir stóllinn minn á hundi, ef ég er að gera eitthvað og fer svo frá því, þá dett ég um hund. Alveg ótrúlegt, hvernig þeir vilja helst skríða inn í rassgatið á mér til að kúra.

Í gær þegar ég kom heim úr vinnunni ákvað ég að baka köku.
Ég skellti í eina stóra súkkulaðitertu og hrærði flórsykurskrem til að setja á hana. Það var bleikt, grænt og gult og þetta var ótrúlega flott og frábær kaka. Börnin mín hlökkuðu mikið til að háma hana í sig eftir kvöldmatinn. En þau urðu að bíða, því að það verður jú að borða hollt fyrst. Kakan beið því uppi á eldavélinni. Ég þurfti svo að skreppa aðeins út eftir Orminum elsta.
Þegar ég kom til baka voru krakkaskammirnar búnar að skafa kremið ofan af hálfri kökunni.
Ég kallaði í þau og skammaði þau fyrir, hvurslags dónaskapur þetta væri eiginlega. En þau greyin könnuðust ekkert við þetta, og voru hin furðulegustu.
Þá fór að renna upp ljós hjá ungamömmu. Helvítis hundbjánarnir höfðu þá sleikt kökuna, og þegar við fórum að skoða aðstæður betur, þá kom auðvitað í ljós að það var rétt.
Þeir höfðu eyðilagt kökuna blessaðir.

Jæja, ég henti þeim fram í geymslu í bræði minni og kemst þá að því að þeir eru búnir að drulla í búrið sitt og draga teppið yfir það.
Næsta klukkutímann var ég vegna þessa með þvottahanska og nefklemmu að skafa skítinn úr öllum rifum og hornum, taka búrið saman, dröslast með það út til að smúla það, og svo að skúra alla geymsluna.

Jæja, þegar ég kem aftur inn eftir að hafa smúlað búrið, fer ég beint í bílskúrinn til að skrúfa fyrir vatnið og hvað blasir þá við mér á bílskúrsgólfinu, nema ein risastór skítahrúgan enn.

Og þá var mér allri lokið. Ég tók hundana á ólunum og grýtti þeim út í girðingu.
Og þar fengu þeir að dúsa þar til ég fór að sofa.
Ég lokaði þá svo inni á klósetti í nótt, því búrið var að þurrkast og mér datt það sko ekki til hugar að hafa þá lausa, þessa bjána.

Jæja, hvað haldið svo að hafi tekið á móti okkur í morgun?
Klósettburstinn nagaður, öll dömubindi heimilisins og klósettpappírinn tættur um allt og tilheyrandi út um öll gólf.

Hvað segiru? Langar þig ekki að taka að þér tvo hunda? Eða á ég bara að stoppa þá upp?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég tek Lúnu strax í dag. TAKK, alveg til í það:)Lofjú mammamma

Nafnlaus sagði...

Af hverju fékk ég ekki tíkarskömmina í fóstur. Held að hún hefði gott af því, svona í vetur og í vor búum við til girðingu og útihundahús. kv.pa

Nafnlaus sagði...

Fyrirgefðu Þóra mín, en ég hló og saknaði Týrusar, sem nagaði allt sem að kjafti kom. Hafði þó sérstaklega smekk fyrir merkjavöru (Nike, Adidas, Timberland, Ecco o.s.frv.) Hefur þú lesið bókina Marley og ég?? Bókin er tær snilld og lýsir svo sannarlega hundalífi.
Gutti er svoddan dúlla að hann kúkar í hekkið :)
Baráttukveðjur úr Sílatjörninni
Guðný Ingvars

Nafnlaus sagði...

Bwahahahaha !!

Heppin ertu :D

Verð að taka undir : Marley and Me er æði ;o)

Sóley