Svefn er dásamlegt fyrirbæri.
Nánast hvern einasta morgun þegar ég vakna, langar mig að sofa lengur.
Stundum geri ég það, og þá á kostnað þvottahússins, því þegar ég vakna á mínum vanalega tíma, þá set ég alltaf í eina þvottavél þegar ég er búin að fara út með hundana og gefa þeim að éta.
Þegar ég skríð upp í á kvöldin þá get ég oft sofnað næstum því áður en ég leggst niður.
Og stundum þegar er búið að vera mikið að gera, sofna ég áður en ég kemst uppí. Það er aldrei gott, því þá er ég í einhverjum asnalegum stellingum og verð hálf beygluð eitthvað í kjölfarið.
Ég hef alltaf átt auðvelt með að sofa, og oft verið frekar lúin svona almennt séð.
Ég hef þann dásamlega hæfileika að geta komið mér fyrir á góðum stað og lokað augunum og steinsofnað í nánast hvaða umhverfi sem er. Þetta er genatískt.
Já mér finnst gott að sofa. Og sérstaklega ef ég fæ að sofa upp í rúmi.
Þetta er forsagan að svefnsögunni minni sem þú færð núna að heyra:
Á föstudaginn síðasta fékk hún Doppa mín, 3 ára, að gista hjá vinkonu sinni.
Ég fór í rúmið rétt rúmlega 23 það kvöld og huxaði mér gott til glóðarinnar að geta sofið alla nóttina og langt fram á næsta morgun.
Ég var vakin í hádeginu næsta morgun, og rauk upp því við systkinin ætluðum að hittast hjá stóra bróður og skera hross. Það var einmitt mæting í hádeginu.
Ég fann fyrir vægum sting í hægri mjaðmaspaða og velti því ekkert fyrir mér.
Sennilega hef ég sofið á sömu hliðinni alla nóttina, huxaði ég með mér.
Þetta lagast.
Verkurinn ágerðist örlítið, því næstu nótt svaf ég í rúminu hennar Doppu með bæði Doppu og Gorminn hjá mér. Þá var þröngt á þingi og svaf ég alveg örugglega alla nóttina á sömu hliðinni.
Eníhú.
Það var svo í gærkvöldi, eftir mjög svo annasaman dag, þar sem ég kom ekkert heim til mín fyrr en rétt að verða 22, að ég fann fyrir verulegum verk neðst í bakinu og mjöðminni.
Ég ákveð því fyrir tilstuðlan bónda míns að leggjast í mjög mjög heitt bað, og reyna að láta þetta líða úr mér.
Sem sé. Ég leggst í baðið og halla aðeins þreyttum augum mínum.
Þegar ég opnaði augun aftur, var baðvatnið orðið hlandvolgt. Þá hafði ég sofnað og sofið dágóða stund.
Ég lagðist þá ísköld upp í rúm og hélt áfram að sofa.
Núna ligg ég í rúminu og er búin að taka íbúfen. Bakið er alveg að drepa mig og ég get varla staðið upp ef ég sit á hörðum stól.
Af þessum hugleiðingum loknum hlýt ég að álykta sem svo að svefn sé fyrirbæri sem ekki skal nota of mikið af í einu og að svefn sé ekki gott að stunda í baði.
Einnig vil ég benda á það að ég átti frí í dag, en ekki hvað!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
"Já sæll" Vona að dagurinn verði þér góður. kv.pa
Já sæl. Þú átt alls ekki að sofa í baði, komdu heldur oftar til mín og ég skal sjá um ungana fram til kl 14 alla helgina. Þú átt fullt af uppsöfnuðum andvökunóttum sem má stoppa upp í . Ástarkv. ma
Úff..!
Eins og þú átt það nú skilið að geta bara hvílt þig og slappað af..
Sóley
Skrifa ummæli