Hún litla Doppa, sem er alveg að verða fjögurra ára bráðum fær trúarfræðslu í hverri viku hjá prestinum sínum, en hann kemur alltaf í leikskólann með kirkjuskjólann.
Áðan vorum við að keyra til að ná í júdókrakkana og þá sagði hún:
"Guð er uppi í himninum"
Jaaá sagði ég, er það?
"Já, hann er mjög langt í burtu, hátt, hátt uppí himninum"
"Hann er svo langt í burtu að maður getur alls ekki séð hann"
"Alveg eins og Grænland, mamma, maður getur ekki séð það, því það er svo langt í burtu"
Nú, sagði ég. Helduru þá að Guð sé á Grænlandi kannski?
"Nei mamma! Guð og Grænland eru eins, rosalega rosalega langt í burtu"
"Kannski getur pabbi séð hann!"
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ef Gvuð er á Grænlandi mamma
getur þá pabbi séð hann?
Ef ísbirnir eru þar amma
ætli þeir éti þá mann?
(Bara svona sem mér datt í hug)
Já, kannski.
Sigga móður......
Ég dáist alltaf að þessum pælingum hennar, mikill huxuður, bara eins og mamma sín.. ;o)
Skrifa ummæli