11.8.09

Maðurinn minn er kominn heim!!!

Já hann er kominn þessi elska.
Ég elska hann svo mikið. Hann er svo dásamlegur.
Það er þægilegt að umgangast hann, þvi við þekkjm hvort annað svo vel.
Hann veit nákvæmlega hvað hann þarf að gera til að gleðja mig og ég veit hvað gleður hann.
Ég elska að elda fyrir hann mat, því honum finnst maturinn minn svo góður.
Það er svo frábært að vinna með honum, því hann hefur fulla trú á getu minni til smíða-, múrara-, pípulagninga- og málningavinnu.
Raunverulega allra verka (nema húsverka)

Ástin - ég bloggaði um þig, og ég meinti hvert orð, þótt það hljómi ógeðslega væmnislega og hálfskringilega. Þess vegna var ég ekki búin að því fyrr...
Elska þig.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Og þú segist ekki vera rómantísk.. ;o)

Sóley

(P.S. ég sá enga væmni..bara the truth ;o))