4.8.09

Verslunarmannahelgin 2009

Þrjár nætur í tjaldi með fjórum dásamlegum börnum sem eru til í hvað sem er og hvenær sem er.

Synt í Hjálparfossi. Klifrað upp í fossinn og staðið í straumnum.
Hversu dásamlegt það er að finna hvað maður er lítill í náttúrunni.

Sund í Þjórsárlaug.
Æðisleg laug, sjóðheit og sveitó.

Hoppað í hylinn í Gjánni.
Hann er sko ísjökulkaldur.
Stormur minn 10 ára stökk um 6 metra niður í hylinn. Ótrúleg hetja.
Mamma gamla hoppaði bara um meter ofan í og fannst hún hafa lagt nóg inn á hetjubankabókina sína.

Á sunnudag pökkuðum við tjaldinu saman og enduðum helgina í faðmi fjölskyldunnar í Andakíl. Þar var auðvitað synt í hylnum hennar mömmu.
Skárra væri það nú!

Mikið var nú samt gott að komast heim til sín í sína eigin sæng.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir skemmtilegan pistil og heimsókn. Ástarkveðja frá mömmömmu

Nafnlaus sagði...

Þú, börnin, familian, náttúran.. gerist ekki betra ;)

Sóley