28.8.09

First impression

Það er læknir á sjúkrahúsinu, sem mér hefur aldrei fundist neitt varið í.
Það er ekki byggt á neinu sérstöku öðru en þeim litlu samskiptum sem maður hefur við þessar elskur.
Flestir eru bara ósköp þægilegir, aðrir frekir og enn aðrir bara ekkert spes.
Þegar ég hringdi á heilsugæsluna á þriðjudaginn var bara hægt að fá einn einasta tíma alla vikuna, það var á föstudegi hjá einmitt þessum lækni.
Ég pantaði hann, og huxaði svo lengi lengi hvort ég ætti ekki bara að afpanta, því mér stóð einhver stuggur af manninum.
En ég er ennþá lasin eftir tvær heilar vikur, svo ég ákvað að bíta á jaxlinn (orð með x!!)
og láta mig hafa það.
Einnig mætti minnast á það að ég er mjög dómhörð og á það til að gefa fólki ekki fair chance, svo ég tók meðvitaða ákvörðun um að leggja mínar skoðanir á hilluna.
Jæja jæja, ég mætti á settum tíma og beið í nokkrar mínútur.
Heimilislæknirinn minn hitti mig á ganginum og tjáði mér að sér þætti þetta allt of langur veikindatími hjá mér.
Það var auðvitað ekki hægt að fá tíma hjá henni.
Til þess þarf maður amk tvær vikur í fyrirvara held ég.
Hvað um það.
Þegar ég kom inn til hans þá stóðst allt sem ég hafði vitað innra með mér allan þennan tíma.
Maðurinn var bara kaldur og hræddur.
Hann var ekkert nema hrokinn og sýndi mér fullkominn yfirgang.
Þegar ég var búin að ropa úr mér allri sögunni, þá spurði hann mig hvað ég vildi eiginlega að hann gerði í þessu!!!
Og svo hélt hann ræðu yfir mér um það að þetta væri ástæðan fyrir öllu bóluefninu sem væri búið að panta inn í landið. Af því að hraust fólk yrði mjög veikt og lægi lengi.
Ég var ekkert að rífast!
Viðtalið var svo kórónað þegar síminn hjá honum hringdi. Hann svaraði og talaði við samstarfskonu mína eins og hún væri hálfviti. Fýlan draup af honum!
Ég vissi það. Maður á alltaf að trúa því sem hjartað segir manni.
Maðurinn er bara bííííííííííííííp!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þannig er nú lífið. Sumt fólk er bara BÍÍÍB og ætti að skrifast með smáu letri því svona smámenni eru ekki svara verð. En mikið skrambi geta þau sært mann mikið.
Skil þig svoooo vel og hana nú. Vertu þú sjálf og láttu þér batna ástin mín. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

ÞETTA kalla ég skíthæl ..!!


Bentu mér á hann, ég skal sparka í bíííííB á honum !

Sóley