31.8.09

Aftur að vinna eftir veikindafrí

Já, ég tók við vaktinni núna kl. 16 í dag.
Nú. Um hálf fimm var hringt og ég bruna af stað. Legg bílnum starfsmannamegin eins og ætlast er til, finn auðkenniskortið mitt og fatta allt í einu að ég man ekki helvískt númerið. Jæja, ég smelli kortinu í geislann og prófa xxxx, bíííííííííp.
Ég prófa aftur xxxx, bíííííííp.
Þá hljóp ég hringinn í kring um húsið og fór inn um aðalinnganginn.
Opna stofuna, kveiki á öllu.
Tölvan, lykilorð, tékk.
Hin tölvan, lykilorð, tékk.
Opna fyrsta forritið, lykilorð, reyni aftur og svo aftur.
Svitna og reyni svo í fjórða sinn. Það er bara hægt fimm sinnum, og þá læsist forritið.
Ok, ég er komin inn.
Opna næsta forrit, slæ inn lykilorð, og þarf þá að rísetta lykilorðið mitt. Geri það og fæ aðgang.
Nú er bara eitt lykilorð eftir og mér text að slá það inn vandalaust.
Hleypi sjúklingnum inn og geri allt sem ég þarf að gera.
Fer heim, klæði mig úr öllum svitablautu fötunum, alveg inn að skinni og fer í kalda og góða sturtu. Fatta lykilorðið að hurðinni, gleymdi að setja # á eftir xxxx...
Velkomin aftur í vinnuna eftir veikindafrí.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eins gott að klikka ekki á lykilorðunum í dag því þá ertu bara ekki með í þjóðfélaginu.
Kveðja frá móðursystur handan Árinnar.

Nafnlaus sagði...

jáhá ekki öfunda ég þig af þessu, þarf bara að muna 2 lykilorð í minni vinnu ;o)

Sóley