2.5.09

Jess, ég er miklu þroskaðri en í gær (fyrrradag)

Já, það er þá komið að því að líf mitt er formlega byrjað af einhverju viti.
Nú er ég orðin þrjátíu ára.
Nú er kominn tími til að njóta þess að halda áfram að púla og puða við lífið.
Njóta þess að halda áfram að vinna, ala upp börn og skepnur og síðast en ekki síst SJÁLFAN SIG.
Ég hef nú ekki vanið mig á að vera að líta til baka á ömmulum, en það er eiginlega óhjákvæmilegt núna, því allir gera svo mikið grín að manni þegar maður er loxins kominn á fertugsaldurinn.
Ég er búin að vera gift í rúmlega tíu ár.
Ég á fjögur börn, 3, 8, 10 og 12 ára.
Þau eru öll (frekar) heilbrigð og eðlileg.
Mér finnst þau auðvitað mjög skemmtileg og alveg frábær í alla staði.
Ég útskrifaðist í fyrra með BSc gráðu í geislafræði og vinn við það 50% vinnu, með von í hjarta að ég fái bráðum aðeins hærri prósentu í launaumslagið mitt.
Ég flutti í fyrra í hús sem við hjónin byggðum okkur. Það er stórt, og það er alltaf drasl í því...
(nema þegar ég held þrítugspartýið, þá verður allt sótthreinsað, og svo þegar þið komið þá segi ég: afsakið, ég hafði bara engan tíma til að taka til!!!)
Ég er sem sagt elsta konan í þessari götu, endaháöldruð. Konur koma til mín til að spyrja um köku- og prjóna uppskriftir.
Eh, nei annars. Þetta var djók.
Ég held samt að ég eigi yngsta manninn í götunni, sem er furðulegt.
Þegar ég lít til baka, get ég bara verið sátt við lífið mitt.
Og sé það satt að lífið sé bara rétt að byrja nú, þá hlakka ég til næstu þrjátíu áranna.

Ég set hérna hlekk inn á myndasíðuna mína. Ég er bara dugleg að setja myndir inn á hana þegar maðurinn minn vinnur erlendis.
http://www.picasaweb.com/ungamamma

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Man það eins og það hefði gerst í gær þegar þú komst í heiminn. Ótrúlegt að það séu þrjátíu ár síðan. Ástarkveðja til ykkar allra. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

Frábærar myndir. Sakna þó myndarinnar þegar ég er að reyna að lyfta þér í fjörunni og einni "ömmustellingu" af þér.

Þóra Þorsteins sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Ég er svo glöð að þú fæddist þennan dag, og að leiðir okkar láu saman 16 árum síðar..

elska þig

Sóley