Þetta er dauðablogg.
VARÚÐ VIÐKVÆMIR!!!
Um helgina fórum við í fermingarveislu til bestu vinkonu hennar Gormalínu.
Hún klæddi sig í sitt besta púss, greiddi sér og málaði sig og hafði mikið fyrir þessu öllu saman. Áður en veislan hófst fórum við í Smáralindina til að kaupa fermingargjöfina.
Þar gekk mín unga dóttir um á sínum háu hælum og skoðaði í búðarglugga.
Hver einasti drengur á aldrinum 10-40 ára sneri sér við til að horfa á hana.
Ég gekk á eftir henni og huxaði ljótt um alla drengi sem voru eldri en 14, því ég vissi hvað þeir voru að huxa.
Þá langaði mig mjög mikið að vera með einhvers konar skotvopn og láta vaða af því.
En bara viðvörunarskot sko, ég er enginn geðsjúklingur!!!
Í gær spurði Doppa mig svo í mikilli einlægni:
"Er pabbi minn dauður?"
Ég sagði henni að hann væri bara í burtu í nokkra daga og svo kæmi hann aftur.
Hún yppti bara öxlum og sagði: "Ó!"
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Ó, ó. Gott hún spáir í pabbann.
Já gelgjan á heimilinum toppar nú ýmislegt þessa dagana. Tók yndislegar myndir af henni í fjörunni um daginn. Ástarkveðjur frá mömmömmu. Takk fyrir mig um daginn. VERÐ að gera þetta fljótt aftur. Hey, fæ ég köku kl 21 á föstudaginn ef ég kem með pabba þinn og "bí bí"?
Þið fáið köku
ég skal halda þeim á meðan þú sparkar í sköflunginn. Annars er skemmtilegt að bregða fæti fyrir pervertum. Mikið er gaman að lesa þetta hjá þér.. Skrifa meira!
Enda stórglæsileg dama á ferðinni, ekkert hissa á snúasérúrhálsliðgaurunum.. ;o)
Sóley
Skrifa ummæli