Kallinn minn er farinn til Grænlands. Hann ætlar samt ekki að vera mjög lengi. Bara mánuð í einu. Það er nú bara lítið í okkar herbúðum.
Næstelsti grislingurinn minn varð átta ára í síðustu viku.
Ég hitti tónmenntarkennarann hans um daginn og hún var að segja mér að hann hefði mikla tónlist í sér og það væri gáfulegt að láta hann fara í tónlistarnám á næsta ári. Ég trúi henni alveg því hann hefur alltaf verið mikið fyrir tónlist og haft góðan takt í sér.
Í gær var hann svo að æfa sig á blokkflautuna, því þau fá að læra á blokkflautu í skólanum. Hann spilaði tvö stutt lög upp af nótnablöðum, tvisvar sinnum hvort. Ekkert mál.
Í gærkvöldi heyrði ég hann svo spila á flautuna lögin tvö, en hann var ekki með nein nótnablöð.
Þetta fannst mér alveg magnað að heyra.
Nú er bara spurning hvaða hljóðfæri verður fyrir valinu.
Spennandi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Áttu ekki við Gorminn? Hélt að hann væri #3, hefur eitthvað breyst? kv. pa
Takk fyrir okkur á sunnudaginn, var svo gaman að hitta ykkur loksins. Kem fljótlega aftur :o)
Haha, já það er víst rétt. Þetta er ekki næstelsti, heldur sá þriðji.
Næstyngsti ef ég man rétt. Karlinn fær vonandi grænmeti og ávexti í körfu í afmælisgjöf næst. Mammamma.
ég er sammála Þóru, drengir eru gríslingar og stúlkur eru gríslur.
ég RÆÐ.
ástar kveðjur
Böddinn
Hei ég á alveg eftir að fá að heyra hann spila.. hvernig hefur það getað gerst ! Hlakka bara til :D
Sóley
Skrifa ummæli