24.1.09

Stoltur fjölskyldumeðlimur

Ég er svo stolt af því að vera í fjölskyldunni minni. Bæði stórfjölskyldunni og minni litlu fjölskyldu auðvitað líka.
Ég vildi bara láta vita af því á opinberum vettvangi.
Ég er hluti af fjölskyldu sem lætur sig varða um annað fólk. Sem réttir fram hjálparhönd þegar aðrir þurfa á því að halda. Sem setur sínar eigin þarfir til hliðar í smá stund ef það þarf. Til að hjálpa og vera hluti af en ekki alltaf bara ég, ég, ég...
Í gær fékk ég að finna eins og svo oft áður úr hverju fjölskyldan er gerð.
Ég elska ykkur og er stolt af að fá að vera hluti af þessu, og stolt af að fá að bera þetta áfram til barnanna minna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl gullið mitt. Þetta eru falleg orð og yndislegt að vera líka hluti af þassari samhenti fjölskyldu. Ástar-og baráttukveðja til ykkar allra. Mammamma.
PS. Er byrjuð á húfu handa Doppu