16.1.09

kjálkaskurðlæknir

Hræðir mig ekki neitt
Ekkert
Ekki baun
Tilhuxunin um einhvern kall með bor og sög og svoleis inní munninum á mér
Nibbs, ég er harðjaxl-sem mun bráðum ekki hafa neinn endajaxl.
Ég þori

3 ummæli:

Steinunn Elsa Bjarnadóttir sagði...

Veistu þetta er ekkert svo mikið mál. Fór í haust til tannlæknis og hann tók báða endajaxlanna niðri og ég hélt þetta yrði svaka mál, svo fyrst ég gat það getur þú það sko pottþétt :o)

Ungamamma sagði...

Æ takk
Ég er að sálast úr hræðslu. Bara nafnið vekur óhug....
Ég er bara enginn jaxl

Nafnlaus sagði...

Jú þú ert endajaxl, tannjaxl, harðjaxl og jaxl og togarajaxl og hörkujaxl og ég skiiiiiiiil þig svo vel. Ætli þú hafir drukkið tannlæknafóbíuna í þig með móðurmjólkinni? Gangi þér vel elskan mín. Kossar í kross á karlinn þinn, hunda, ketti og krakka. Mammamma.