8.8.08

Enginn sími og ekkert net.
Það eru komnir 38 virkir dagar, 8 vikur!!!
Ég er búin að hringja og ég er búin að hringja. Og alltaf úr gemsanum auðvitað.
Reikningurinn verður svimandi.
Ég hringdi í vodafone og ég hringdi í símann og ég hringdi í TRS Selfossi
Og enginn bara vill bera ábyrgð á þessu.
Núna síðast bentu þeir á Mílu. Ég veit ekki einu sinni hvaða fyrirtæki það er!!!
Ég sendi þeim tölvupóst, mjög kurteisan tölvupóst.
Vonandi virkar þetta.
Mér finnst svo glatað að blogga í vinnunni, og ég vil ekki vera að setja allan bloggrúntinn minn inn á history á vinnutölvunni.
Svo ég er bara net-svelt þessa dagana.
Glatað!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vildi ég væri hjá þér og gæti haldið utan um þig Ungamamma. Þú ert hetjan mín. Mammamma.