14.7.08

Er það von að ég hafi skipt um símafyrirtæki???

Á föstudaginn voru komnar4 vikur síðan ég bað símamenn að setja inn línu hjá mér.
Ég er viðskiptavinur vodafone eftir hrakafarir sem ég nenni ekki einu sinni að rifja upp lengur.
Hins vegar kaupir vodafone þjónustu af símanum og þurfti ég þess vegna að biðja þá um aðstoð.
Í morgun fæ ég svo frekar fyndið símtal.
Það er ungur maður á línunni sem spyr mig:
" Er sónn í símanum hjá þér?"
Ég svara neitandi, enda hefur enginn komið til að tengja inn línuna.
"Já, ég skil, en ef þú tengir símann í tengilinn, kemur þá sónn í símtólið?"
Nei, ég segi honum að ég geti ekki tengt símann í tengilinn, því enginn hafi komið að tengja línuna inn í húsið ennþá.
"Jújú, það stendur hérna hjá mér í tölvunni að þetta mál sé lokað..."
Ég held mig fast við það að enginn hafi komið. Spyr hann svo hvort að þeir fari nokkuð inn meðan fólk er ekki heima.
Nei hann kannast ekki við það.
Ég sagði honum að ég myndi athuga þetta þegar ég kæmi heim í dag.
"Já, og ef það kemur enginn sónn, þá þarftu að hringja í 800-7000, (siminn) og tilkynna þeim það"
Takk fyrir það vinur (lesist:fáviti)!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mundu bara að hringja í 800-7000 úr HEIMASÍMA en ekki gsm því það er miklu ódýrara. Æi nei held þetta sé gjaldfrjálst númer. Kannski er áhrifameira að nota bara gsm símann til að tilkynna að ekki sé kominn heimasími. Takk fyrir síðustu daga. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú aldeilis fín þjónusta. Er það ekki þetta sem símafyrirtækin eru að auglýsa hver í kapp við annan.
Sigga móður......