4.7.08

Halló heimur

Ég er enn ekki orðin nettengd, og ekki komin með heimasíma.
Skítt með heimasímann, þar sem ég er með gemsa.
En mánaðarmót án nettengingar.... Ekki alveg að gera sig.
Eins gott að ég á ennþá vini, býð mér í mat til þeirra og nota netið.

Ég er búin að skila íbúðinni í Reykjavík. Pjúff, hvað var mikil vinna að þrífa hana. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað hornin voru skítug.
Ekkert annað samt... nei nei

Þetta er fyrsti dagurinn minn á bakvaktinni, og ég krossa fingur og vona að allt gangi vel.
Annars bara... HÆ
og bæ.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú þannig liggur í því. Ég hélt að Stokkseyri væri kannski ekki oðin nettengd ennþá en það ert bara þú.
Renni einhverntíma til þín með skrifborðið, á svo góðan flutningabíl.
Sigga móður......