2.6.08

mála-pakka-mála-pakka

Klára að mála á morgun.
Svo er þríft.
Svo er flutt.

Ég er að byrja að pakka.
Stend á sigginu og góni á draslið.
Hvar í fjandanum á maður að byrja???

Henda, henda. Flokka, flokka.
Eins gott að ég er ein í þessu.
Set í poka föt til að deila.
Hendi öllu sem ég get.

Hvað á maður að geyma???
Skólabækur, smábarnaföt, litla skó, teiknaðar myndir???
Úff hvað þetta er erfitt.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kem á föstudag gullið mitt, ekki missa vitið. Bara einn hlut í einu jú nó. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

Ráð frá gamalli móðursystur með reynslu: Hirtu sitt lítið af hverju; gefðu það sem þú notar ekki en aðrir geta notað og hentu, hentu og hentu.
Kveðja, Sigga.