Í dag kom móðurfjölskyldan mín til að hjálpa mér í húsinu.
Það komu hvorki meira né minna en 14 fullorðnir og 9 börn.
Að auki var ég auðvitað þarna með mína 4 grislinga.
Það var svo mikið af fólki að ég var orðin helringluð á endanum að reyna að finna verkefni fyrir alla. Þau kláruðu að mála allt á efri hæðinni sem var tilbúið, júdósalinn og baðherbergið niðri. Svo var kíttað í hornin og gluggar á neðri hæðinni græjaðir fyrir lokun og þrifnir. Eldhúsið var þrifið hátt og lágt og byrjað í garðinum. Ég hélt áfram að dúndra upp gipsi á útveggina.
Á eftir fengu sér allir kjötsúpu og kjöftuðu og hlógu. Mikið er gaman að hitta fjölskylduna sína.
Seinni partinn fékk ég svo send Reynitré sem eru ættuð úr garðinum hennar ömmu á Selfossi, og reyndar miklu lengra aftur úr hennar fjölskyldu og birkitré líka.
Þvílík dýrð.
Takk fyrir daginn kæra fjölskylda. Þið eruð yndisleg.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Bara takk sömuleiðis. Þetta var skemmtilegur dagur.
Sigga móður......
Takk sömuleiðis dóttlan mín. Ég sem alltaf hef afþakkað afmælisgjafir og afskorin blóm segi bara: Þessi dagur var besta afmælisgjöf sem ég gat fengið. Einhver spekingur sagði einhvern tímann: Dýrmætustu hlutirnir eru ekki hlutir. Ástarkveðja. Mammamma.
Takk fyrir Þóra mín,
ég er nú stoltust að þér kellan mín,
ótrúlega duglega í þessu öllu saman,
sýnir það hér enn og aftur ; )
kv. magga
Skrifa ummæli