9.4.08

Ég hef alltaf gert grín að þeim sem þramma í ræktina tvisvar á dag.
Mér finnst ótrúlega fyndið og reyndar stórmerkilegt að fólk hafi svo lítið fyrir stafni að það sjái sér fært að mæta tvisvar á dag í ræktina. Þetta er eitthvað svona fansí smansí dót, fyrst brenna, svo lyfta. Ég veit ekki.
Ég fer á morgnana kl. 6.15 og mæti þar hrikalegri kellingu sem lemur mig áfram eins og harðfisk. Það er gott fyrir mig, því ég er oft dáldið góð við sjálfa mig.
Eníhú
Ég steinsvaf yfir mig á mánudaginn, alveg til 6.30, og var einmitt of góð við sjálfa mig og snúsaði klukkuna til sjö.
Þegar ég mæti svo á þriðjudagsmorguninn, þá segir hún mér að ég hafi verið óþekk að sleppa mánudeginum, og að ég þurfi að bæta það upp. Hún segir mér þá að hún sé með tíma í hádeginu, og ég komi bara þangað. Svo í gær, þá fór ég tvisvar í ræktina sama daginn. Og ef þið haldið að hún hafi gefið mér afslátt af púlinu vegna þess að ég var svo dugleg að mæta tvisvar, þá skuluði huxa ykkur aftur um. Hún er KLIKK!!!
Og ég elska hana...
En ég var svo þreytt þegar ég kom heim eftir hádegistímann að ég gat ekki lyft hendinni upp að munninum til að borða, hvað þá annað. Og það er slæmt fyrir matargat eins og mig.
Og svo fór ég að sofa kl. 22 í gærkvöldi.
Svo kláraði ég ritgerðina mína, og skilaði henni til leiðbeinanda til yfirlestrar.

Ég er í skýjunum!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kraftur er í þér kona!!! Þú ert náttla bara flottust

kv. Steypa

Nafnlaus sagði...

Þú ert hetjan hennar mömmsu þinnar. Ég er svooooo stolt af þér gullið mitt. Mammamma

Nafnlaus sagði...

Flott hjá þér,
en þvílík harka....... úff púff.

kv.magga

Nafnlaus sagði...

Gætirðu ekki komist í kvöldtíma líka úr því að þú ert búin með ritgerðina ??
Sigga móður......