Long tæm nó sí eins og sagt er.
Ég skilaði ritgerðinni á föstudaginn. Það var alveg frábært. Nú er ég bara einu smá skrefi, eða stóru skrefi, sko ritgerðarvörninni, frá útskriftinni. JÍ HAAAA
Ég er komin með 60% sumarvinnu frá júní fram til sept, og möguleika á áframhaldandi eftir áramót, svo ég er auðvitað bara alveg í skýjunum.
Nú styttist all-skuggalega í að kallinn fari aftur að vinna. Æ, það er bara svo margt sem á eftir að gera til að þessi húsbygging gangi alveg upp. Ég veit sem sagt hvar ég verð alla lausa daga.
Það er auvitað ekkert ofverk mitt að sparstla, mála, flísaleggja, parketleggja og þannig, en það er í raun það sem eftir er. Við ætlum að henda upp innveggjunum, og hann ætlar að ganga frá rafmagninu áður en hann fer.
Það er komið baðherbergi, þvottahús, eldhús....what more do I need...
Ég mun flytja með krakkana áður en ég byrja að vinna. Það er líklegasta planið eins og er.
Jæja, ég rausa bara og rausa.
Ég fór á Jesus Christ Superstar í gær. VÁÁÁÁ!!! Þetta var eins og að fara á tónleika. Söngurinn er alveg meiriháttar. Júdas var langsamlega og algjörlega langbestur. Meiriháttar.
Ég skemmti mér þvílíkt vel.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Mikið hlakkar mig til að fá þig austur fyrir fjall!!!!
kv. Steinunn
....þangað til karlinn fer að vinna...? Ef það sem minn kæri tengdasonur er í kallast ekki vinna, já þá má ég hundur heita. Þið eruð hetjur öll sömul og ég segi enn og aftur, húrra fyrir frábærri fjölskyldu. Við munum hóa saman vinum og vandamönnum og mala þetta og flytja ykkur austur fyrir fjallið mitt. Vá hvað ég öfunda ykkur þá. Ástarkveðja frá mömmömmu í útlegð á vesturlandi.
Skrifa ummæli