30.4.08

Mamma hafði rétt fyrir sér

Það er auðvitað algjörlega fáránlegt að halda því fram að kallinn hafi verið í fríi þessar síðustu 6 vikur. Hann hefur síður en svo verið í fríi. Hvorugt okkar reyndar. Við vorum orðin svo úrvinda núna síðustu dagana að það var varla hægt að tala við okkur. Það mokaðist líka hellingur undan okkur og aðstoðar-ættingjum okkar. Við kláruðum næstum alla veggina, eldhúsið er klárt og baðherbergin eru alveg að smella. Þvottahúsið er til og allt rafmagn er komið.

En nú er hann kominn í vinnuna sína, þessa sem hann fær borgað fyrir að vera í.
Hann fór í morgun.
Ég er auðvitað hundleið og allt það, það fylgir því.
Þetta er alltaf erfitt framyfir fyrstu helgina, og svo jafnar það sig. Síðan er síðasta vikan alltaf mjög lengi að líða. Í þetta sinn verður hann sex mánuði úti, með tveimur 2 vikna fríum.

Ég ætla að skrúfa, spartsla, mála og þrífa og flytja inn áður en ég byrja að vinna, þann 16. júní.
Klikkuð?
You better believe it mar...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ,æ,grasekkja á ný. En þú spjarar þig eins og ævinlega, engin hætta á öðru. Styttist í að styttist á milli okkar.
Sigga móður......

Krían sagði...

Aftur til hamingju með afmælið!
Ekki gleyma að láta mig vita hvernig verður í næstu viku svo ég komist nú eitthvað að hjálpa til.

Ferlegt hvað þetta er langur tími sem hann er þarna úti :(

Kv. Tinna

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið í gær mín kæra
kveðja Steinunn og co

Nafnlaus sagði...

Þori ég, vil ég get ég? Já ég þori get og vil! Minnir að þetta sé þitt mottó gullið mitt. Mammamma