1.3.08

Stormur 9 ára

á morgun.
Í dag fór hann á júdómót og lenti í öðru sæti. Ég er mjög stolt af honum. Þetta var fyrsta utanfélagsmótið hans, og hann stóð sig stórkostlega. Sá eini sem náði honum niður mátti sko alveg hafa fyrir því skal ég segja þér.
Hvað um það. Á morgun er bekkjarpartý kl. 13, og svo fjölskylda kl. 16.
Allir velkomnir ef þú ert á ferðinni. Það er amk pottþétt kaffi á könnunni, og kaka með því.
Að huxa sér að það séu komin 9 ár síðan hann fæddist. Hvað tíminn líður. Það þýðir líka að ég er að verða 29 bráðum...
Skemmtileg saga á morgun af fæðingardeginum.
Núna þarf að baka. Og ég ELSKA að baka.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með strákinn þóra mín,
hann stendur sig greinilega vel....

Kv.magga

Nafnlaus sagði...

Til hammó með stráksa :)

Nafnlaus sagði...

Hann er yndislegur þessi drengur, vermir alltaf hjartað mitt ;o)
Sóley