3.3.08

Kennarar... BÖÖÖÖÖÖÖ (sorrý mamma!)

Fæðingarsagan hans Storms er ekkert skemmtileg.
Ég beið í 6 daga eftir honum. Hann var bara ekkert að spá í að láta sjá sig.
Þegar var kominn settur dagur, þá brunuðum við nýbökuð hjónin á Selfoss með litluna okkar í nýja skódanum. Við ætluðum að vera hjá mömmu og pabba þar til pungurinn fæddist. Það var alveg arfavitlaust veður á heiðinni, og lögreglan var að undirbúa sig undir að stoppa umferðina. Við vorum síðasti bíll yfir...
Já, skódinn bregst ekki. Hann er reyndar orðinn of lítill fyrir þessa ofur-stóru-ekki-vísitölu-fjölskyldu, en hann er ennþá til og dugir vel.
Gistum svo bara í góðu yfirlæti hjá mömmu og pabba og höfðum það rólegt. OF rólegt reyndar, en það er annað mál.
En svo dreif hann í þessu, og það var heljarinnar helvítis mál að koma honum í heiminn. Ég var bara alveg búin á því. Orgaði og gargaði þannig að það heyrðist út yfir á. En hann komst.
18 merkur, algjör bolla. Og þvílíkt augnayndi auðvitað. Og er enn.
Hann var ekki lengi að verða 9 ára.

2 ummæli:

tvina sagði...

ÆI lufsan mín, þú orgaðir ekkert mikið. Þetta er bara í minningunni, ég var nemmilega þarna manstu. Böddi í bikinibrók að einhverri spikfeitri hjúkku því hann var fyrsti væntanlegi pabbinn sem bað um að fá að vera ofan í pottinum með konunni sinni. Vá hinir hafa trúlega bara staðið á bakkanum með háfinn og beðið eftir að veiða krógann upp úr áður en hann drukknaði. Já svo minnist ég þess að það gekk mikið á þegar hann brautst út hálfhengdur því naflastrengurinn var margvafinn utan um háls og búk á STorminum, enda stormur úti og hávetur. En til hamingju með allt og kennarar eru bara ÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖ það er þeirra hlutverk dúllan mín, enda ég að hætta mannstu, vil ekki vera ÖÖÖÖÖÖÖÖÖ bara ÆÆÆÆÆÆÆÆIIIIIIIIII

Nafnlaus sagði...

Bwahahahaha !! Sko að sameina þessar tvær minningar er náttla bara snilld !! :D
Sóley