Þar til ég skelli mér til köben að sækja kallinn.
Það væri lygi ef ég segðist ekki hlakka til.
Annars kyngir niður snjó hérna í Borginni. Alltaf gaman að hafa smá snjó. Við Doppa löbbum á leikskólann á hverjum degi. Henni finnst svo gaman að láta draga sig á stýrissleðanum. Skemmtilegast er auðvitað að stíga á bremsurnar. Þá sný ég mér við og segi henni að hætta. Það finnst henni fyndnast. Hún er rosalega stríðin þetta litla skott. Sver sig alveg í móðurættina.
Æ þetta var hundleiðinlegt röfl. Bara nennti ekki að skrá niðurstöðurnar úr mælingunum og setja upp í línurit. Best að koma sér að verki.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
hæhó
Kv Jonni
Ójá, það verður fjör í Köben..... ; )spái ég....
Kv.magga
hahaha gott á þig, sé alveg grallarasvipinn á henni, fyrir mér.
kv. Steypa
Þú fyrirgefur en ég á enn eftir að heyra/lesa þig röfla..
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt ;o)
Sóley
Skrifa ummæli