16.1.10

Gítar

Það hefur verið draumurinn minn frá því ég var unglingur að geta spilað vinnukonugripin á gítar, því ég elska að syngja, og það er svo frábært að geta gripið í gítarinn með.

Um jólin gaf minn elskulegi eiginmaður mér gítar. Ég fékk frábæran gítar og það fylgdi með smá diskur fyrir algjöra byrjendur til að geta byrjað að prófa.
Ég sat hérna áðan og lærði þrjá tóna.
Þegar ég var búin að æfa mig helling kemur svona afsakið hlé skjár í tölvunni, en á honum stóð: "You should rest now, your left fingers are probably getting sore"
Og já, það var sko satt. Bendiputtinn minn var orðinn voða aumur, en ég get spilað gamla nóa. (að vísu bara með einum tón) En ég er svo stolt!!!
Ég ætla sko að halda áfram á morgun.
Hver veit, kannski verð ég búin að læra eitt eða tvö lög um næstu jól.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þegar þú varst yngri þá lærðir þú smá vegis á píanó, styttra en við hefðum viljað en það var svo margt sem glapti fyrir þér á þeim árunum.
Ef ég og pabbi þinn heyrum "Til Elísu" þá minnir það okkur alltaf á þig og þínar tilraunir til að spila það verk á píanettuna þína.
Gangi þér vel gullið mitt. Þú verður orðin hæf fyrir næsta ættarmót.

Unknown sagði...

Frábært, þetta langaði mig alltaf til að gera, en......ekki get ég sungið nema þar sem aðrir syngja ekki með.....veit þú rúllar þessu upp :))

Þóra Þorsteins sagði...

Þvílík lukka að eiga svona stuðning vísan hjá foreldrum sínum. Takk

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að heyra þig með gítarinn, alltaf notið þess að hlusta á þig beita röddina, enda ertu með geðveika rödd mín kæra..! ;o)

Sóley