Um helgina sá ég músatítlu inní þvottahúsi. Ég fór og leitaði smá stund, en sá hana ekkert aftur. Hundarnir voru svo lokaðir inní þvottahúsi um nóttina og vonaði ég innilega að þeir hefðu fundið músina og étið hana bara eða eitthvað.
Nú, í gær kallaði Stormur á mig þar sem hann stóð uppí sófa og sagði að músaranginn hefði tekið hægri beygju beint inn í hans herbergi þar sem hún kom lallandi út úr mínu.
Jæja, upphófst þá mikill eltingaleikur.
Ég sagði Stormi að taka loftriffilinn og skjóta kvekindið, en það hljóp svo hratt að hann náði því aldrei í sigti.
Ég lofaði krökkunum mínum þúsund kalli ef þú gætu náð músinni.
Meira og minna í allt gærkvöld voru þau lokuð inní herbergi að brölta við að ná kvikindinu, en ekkert gekk.
Áður en ég fór að sofa setti ég Síríus súkkulaði með rúsínum á músagildru sem ég fékk lánaða hjá félaga mínum. Í morgun sýndi ég krökkunum þetta afar litla dýr áður en ég henti því í poka og kastaði út í tunnu.
Þá kemur spurningin:
Eiga þau að borga mér þúsundkall?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Nei, borga þú þeim 1000 kall. það er ekkert mál úr því músin er dauð, hver sem drap hana.
Fékk tvær hér inn um daginn. Önnur var að sýsla undir hjónarúminu þegar ég ætlaði að fara að sofa.
Frekar hvimleitt.
Sigga móður......
Sigga klára kona. Ég gaf þeim pening. Þú ert frábær. Ég er búin að veiða aðra mús.
Skrifa ummæli