20.11.09

Algjör sveppur

Ég er að flísa hjá mér eldhúsið og mála myndir á veggina.
Kannski á ég eftir að lenda í hroðalegum vandræðum einn daginn þegar ég ætla að hafa hvíta veggi heima hjá mér og engar myndir. Það verður örugglega ekki auðvelt að mála yfir þetta allt saman, en jæja. Er á meðan er. Ég hef mjög gaman að þessu.
Núna er ég að bíða eftir að fúgan taki sig aðeins svo ég geti farið að hreinsa.
Árshátíð í vinnunni á morgun, og litli bróðir og kærastan koma að passa með börnin sín tvö.
Skrýtið, en ég hlakka meira til að fá þau í heimsókn heldur en að fara á árshátíðina.
Ég er sennilega frekar mikill félagsskítur.
En kannski verður bara feikna fjör.
Sjáum til hvernig það fer.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehehe skil það svoooo vel, sérstaklega þegar maður á svona mikið gull fyrir fjölskyldu ! ;)

Elska myndirnar þínar, allsstaðar, mun sakna drekans mikið ;o)

Sóley