sit ég og veg og met kosti og galla þess að flytjast erlendis með fjögur börn.
Kostirnir eru margir og gallarnir eru margir.
Ég er algjörlega búin að snúast í þúsund og sjö hringi yfir þessu.
Should I stay or should I go?
Ég fór til Danmerkur í síðustu viku í atvinnuviðtöl.
Danirnir eru með öll flottustu tækin í öllum stofum, allt það nýjasta og besta.
Það er algjörlega draumur hvers nýútskrifaðs manns að starfa með nýjustu tæknina og nýjustu græjurnar. Þetta er nú dálítið tækjaóð starfsgrein sem ég vinn í. Við elskum allar tækniframfarirnar og alla nýju takkana og fídusana. Mmmm...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Hvar í Danmörku Þóra?
Solla
Nálægt höfuðborginni... Fór til Roskilde, Köge og Holbæk
Snakke I dansk? Ástarkveðja frá mömmömmu.
Ég hugga mig við það, að hvar sem þú ert í heiminum, verður þú alltaf vinkona mín.. og ég veit að hvar sem þú verður í heiminum, þá munt þú massa það ! ;o)
Sóley
Skrifa ummæli