Það eru skrýtnir tímar á Íslandi. Ég er ekki viss um mína vinnu, og maðurinn minn er hreint ekki viss um sína.
Við ákváðum því að hafa opin augun og einblína ekki endilega bara á klakann.
Ég sendi eitt bréf frá mér þar sem ég flagga áhuga og 10 dögum seinna er búin að panta far til Danmerkur þar sem ég mun fara í þrjú atvinnuviðtöl.
Þetta er ótrúlega skjótur tími, og maður hefur varla tíma til að pæla í þessu.
Ég er bara að fara að skoða málin. Ekkert merkilegt. Ég er búin að fara yfir þetta hundrað sinnum í huganum, vega og meta kosti og galla og vera hrædd og spennt til skiptis.
Í kvöld bauð ég ömmu minni í kvöldmat. Við erum æðislega góðar vinkonur, og náum vel saman. Getum spjallað um alla heima og geima og dáðst hvor að annarri og gefið ráð.
En ég gat ekki fyrir mitt litla líf sagt henni að ég væri að fara í þessi atvinnuviðtöl. Ég bara gat það ekki. Stundi svo upp á endanum að ég hefði sótt um í Danmörku.
Tárin komu upp í augun á henni, og hún kvaddi mig svo með þeim orðum að hún vonaði að allt gengi vel og að ég þyrfti á endanum ekkert að flytja til útlanda.
Ég er með samviskubit, því ég var eiginlega að ljúga að ömmu minni, trúnaðarvinkonu minni sem hefur svo oft huggað mig þegar lífið er skrýtið og erfitt.
Mér líður dáldið eins og skíthæl.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
svona,svona elsku vinkona.
Þú ert andstæðan við skíthæl.
Þú ert hjartahlý og yndisleg.
-Solla
Ég sé nú ekki lýgina. Varstu ekki akkúrat að stynja upp þeirri staðreynd að þú hefðir sótt um vinnu erlendis. ÁSTarkveðja frá Ma og Pa.
Skil þig, Þóra mín.
Ekki það auðveldasta í heimi að segja ömmu þinni eitthvað sem vitað er að henni finnst ekki gott.
En... henni líður vel ef fólkinu hennar líður vel, hvar sem það er í veröldinni.
Kveðja, Sigga móðurs.....
Gerir það þig að skíthæl að vilja ekki særa ?
þá mættu vera til fleiri skíthælar..
Lovjú
Sóley
Skrifa ummæli