24.8.09

Alltaf frá því að Doppa var mjög lítilhefur hún viljað sofna hjá einhverjum. Oftast er það ungamamma sjálf sem fær heiðurinn og oftast er það sjálfsagt mál.
Doppa hefur nefnilega alveg sérstakar venjur þegar kemur að því að sofna.
Ég hef lengi fengið gagnrýni úr ýmsum áttum fyrir að leggjast með henni á kvöldin, því hún er mjög ákveðin og oft lengi að sofna. Það þarf að lesa og hlusta og segja sögur og biðja bænir og allt í réttri röð, eftir hentisemi frökenarinnar góðu. Stundum þreytist ég á endalausu sögunum aftur og aftur og stundum steinsofna ég sjálf og missi af öllu kvöldinu. Stundum er hún bara fljót að sofna og allt fer eftir áætlun.
En þegar hún er alveg að sofna, þá snýr hún sér að mér, stingur andlitinu alveg að hökunni á mér og andar djúpt og hægt. Svo setur hún aðra höndinu undir hálsinn og hina á höfuðið og strýkur mér hárið þar til hún sofnar.
Þetta er svo dásamleg stund að þegar hún er sofnuð, þá ligg ég oftast lengi lengi og nýt þess að vera í faðminum á þessari ákveðnu stúlku. Þvílíkur unaður.
Ég er búin að vera mjög veik síðustu daga og núna í kvöld var fyrsta kvöldið í langan tíma sem hún hefur sofnað hjá mér, og þetta var bara þvílík sæla að ég varð að segja þér frá því.
Mér er skítsama þótt einhverjum finnist þetta hörmuleg tímaeyðsla. Ég elska að svæfa börnin mín og ætla að gera það á meðan þau nenna.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Þóra! Ég er glöð að þú ert að hressast. Sá tími sem maður eyðir með börnunum sína ALDREI tímaeyðsla, bara svo þú vitir það. En þú veist það auðvitað, hvernig læt ég. Bestu kveðjur úr Sílatjörninni. Guðný Ingvars

Nafnlaus sagði...

Sammála síðasta ræðumanni. Yfir og út. Nú ertu virkilega að hressast því annars gætirðu ekki bloggað mín kæra. Ástarkveðjur á ströndina. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

Njóttu þess.
Þessar stundir eru núna og koma aldrei aftur.
Kveðja frá móðursystur í Ölfusi sem vonar að þú hressist sem fyrst.

Nafnlaus sagði...

Ég brosi nú bara við að lesa þetta, njóttu þess ssskan mín :*

Sóley