Við Doppa erum á sundnámskeiði á morgnana. Þetta er tíu tíma námskeið, og við skemmtum okkur mjög vel.
Með henni í hóp eru krakkar fæddir 2003, 2004 og 2005. Við erum bara þrjár mömmur sem þurfa að fara með börnunum oní, hin eru orðin nógu stór til að vera ein.
Hinar mömmurnar hins vegar margar hverjar eru meira með börnunum sínum og hjálpa þeim meira heldur en við sem förum sjálfar ofaní laug.
Þær standa í öllum fötunum (allar saman í hóp) og fylgjast með ungunum sínum í sturtu (og okkur hinum líka).
Þær tala stanslaust hver í kapp við aðra við sitt barn: Farðu undir sturtuna, þvoðu þér betur, fáðu þér sápu, bleyttu hárið, farðu betur undir sturtuna, horfðu upp, farðu í sundbolinn/skýluna, lagaðu þig til, skolaðu af þér sápuna, skrúfaðu fyrir sturtuna, lagaðu sundfötin, farðu út í pott.
Þetta er alveg stanslaust, endalaust og þær tala hátt og kalla nöfn barnanna endalaust til að þau heyri að það sé verið að tala við þau.
Ég er farin að mæta eins seint og ég get til að losna við þær, og hleyp uppúr langfyrst til að verða á undan, því ekki skánar það eftir tímann, þegar öll þessi börn þurfa að þvo sér með sjampó og hárnæringu með tilheyrandi köllum og aðstoð. Siggi horfðu upp, upp, upp, Siggi, upp! Horfðu upp í sturtuna svo sjampóið skolist úr, Siggi, upp, eins og upp í himininn, sjáðu hvar vatnið kemur. AAAAAAAAAA!!! Mig langar að snúa þær úr!!!Þurfa þau öll að nota sjampó á hverjum degi!!!
Ég skil hreinlega ekki af hverju þær fara bara ekki með krakkalufsunum í sturtuna. Þær eru óþolandi.
Sem betur fer er Doppa mín mjög mikið til í að vera á undan og svoleiðis, þannig að ég þarf ekki að standa í sturtunni með þeim, eða það sem verra er, bíða eftir sturtu.
Ég þoli ekki þegar börn fá ekki að reyna sjálf, og ég þoli ekki að vera í sturtu með fimm klæddum konum!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Mundu svo " þurrka klobbann vel og þurrka vel milli tánna". Svettu bara vatni á þær :)) pa.
Haha, á morgun skvetti ég á þær og segi þeim að maður eigi ekki að fara í fötunum í sturtu... Góður!
Með fimm klæddum frúm í sturtu
fyndið og déskoti svalt.
Með rassinum rektu þær burtu
rektu við hátt og snjallt.
Ástarkveðja frá mömmömmu
Taka 2:
Með fimm klæddum frúm í sturtu
fyndið og déskoti svalt.
Með rassinum ryddu þeim burtu
rektu við, hátt og snjallt.
ÁÁG
Bwahahahahahahhahahahahahahahha !!
Þessi hlátur er endalaus þökk sé þér og ma og pa !! :D
Sóley
Skrifa ummæli