1.6.09

Foreldraraunir

Þú heldur örugglega að ég sé að fara að kvarta yfir börnunum mínum.
En það er ekki svo gott. Ég er nokkuð ánægð með þau.
Hins vegar er ég ekki svo ánægð með foreldra. Ég hef verið í foreldrastarfi hérna síðan í haust. Það hefur verið algjör höfuðverkur að fá foreldrana í þessu plássi að mæta á nokkurn skapaðan hlut sem heitir fundur eða skipulagning eða þess háttar.
Núna er til dæmis planið að fara í útilegu með 7. og 8. bekk. Allt í lagi, þar sem tímarnir eru eins og þeir eru, þá mega kennarar ekki taka neina yfirvinnu, svo þeir fara kl. 16, og koma aftur morguninn eftir. Þá þurfa foreldrar að koma og hjálpa til og einhverjir að gista. Ég boðaði til fundar, og við vorum tvær sem mættum á hann. Hún lofaði að gista og ég fékk símalista til að hringja í alla aðra foreldra. Af tæplega 40 börnum, fékk ég 3 mömmur til að koma og hjálpa við að tjalda og grilla og engan til að gista.
Ein mamman sagði mér að henni þætti alveg nóg að láta barnið sitt læra heima, henni fyndist hún ekki þurfa að gera neitt meira fyrir þennan skóla.
Foreldrar mínir eru ekki svona fólk. Þau fóru alltaf í allar ferðir og voru fararstjórar og fylgdarlið í nánast öllum ferðum sem ég fór í á vegum skóla eða íþróttafélags.
Þau tóku því Doppu litlu með sér í sumarbústaðarferð um helgina. (Takk elsku ma og pa, þið eruð frábær)
Strákarnir fá að gista hjá vinkonu minni sem á krakka í skólanum.
Og ég fer í útileguna, að sjálfsögðu. Afsakanir á borð við: ég á svo mörg önnur börn heima, ég hrýt, ég kann ekki að hjóla, ég er með gigt, ég á ekki tjald og þess háttar eiga því ekki við mig.
Enda er ég hörkutól! Og afar hlynnt miklu og góðu foreldrastarfi. Og elska únglinga.
Ég komst að því áðan að ég hlakka barasta til.
Og vegna fyrri kynna minna af þessum foreldraelskum ætla ég að taka nokkur auka stykki af húfum, vettlingum, síðum nærbrókum, ullarbolum, teppum, svefnpokum og þess háttar, auk þess að vera með ríkulega smurt nesti til að ég geti gefið með mér.
Óskið mér góðrar útilegu.

3 ummæli:

- sagði...

góða útileguuuu!

Nafnlaus sagði...

Takk sjálfust gullið mitt. Ég veit að samvinna þín og samstaða með ungunum á eftir að skila sér mörghundruð sinnum falt til baka því með þessu ertu að leggja undirstöðuna að góðum börnum sem eru þakklát foreldrum sínum fyrir hjálpina og stuðninginn. Til hvers eru þessar foreldradru.... að eiga öll þessi börn ef þeir mega ekkert vera að því að vera með þeim..........og ekki orð um það meir frá minni hendi.

Nafnlaus sagði...

Og enn og aftur : Þú ert frábær mamma ! :D

Sóley