Um síðustu helgi stóð valið á milli þess að fara að beita beittri stoppunál og flenginum við barnauppeldið, eða hreinlega taka sér bara frí.
Ég hringdi í Mágkonu mína elskulega og mann hennar og bað þau náðarsamlegast um að leysa mig af eina helgi.
Að sjálfsögðu urðu þau við beiðni minni þessar elskur og fluttu í sveitina á föstudaginn síðasta, eftir vinnu.
Þá lagði ég af stað ásamt litla bróður upp að Úlfjótsvatni, þar sem hópur fólks ætlaði að stunda saman hugleiðslu og jóga.
Helgin mín fór sumsé í hugleiðslur og jógateygjur, auk þess sem ég svaf mjög svo óhóflega, og þóttist hafa mjög gott af.
Núna sit ég hérna í sófanum og bíð eftir að elsta barnið komi sér heim að sofa, svo að ég geti sjálf farið að sofa.
Framundan er vinnuvika og heimkoma bóndans.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Gott að þú gast hvílt þig.
Sigga móður......
Þessar hugleiðsluhelgar eru bara snilld fyrir þig mín kæra, átt þetta svooooo skilið ! :D
Sóley
Skrifa ummæli