2.4.09

Tjaldurinn mættur á Stokkseyri

Og þvílíkur unaður að heyra í honum. Ohhh... maður kemst sko í vorfíling. Alveg þar til ég horfi út um gluggann og sé grámyglað veðrið. Uss uss aumingja Tjaldurinn.
Ég var að ræða við son minn um skólann og kennarann hans. Hann hefur ekki mjög mikið úthald í leiðinlegar samræður og þegar ég var að spyrja hann hvernig honum findist kennarinn þá sagði hann:
"Spáðu í því ef skólastjórinn myndi breytast í dreka sem kynni að spila á gítar, þá gæti hann gefið okkur hamborgara úr hamborgarabyssunni sinni"
Ég varð hálf fúl, því ég vildi tala við hann í alvörunni:
"Hvurslags er þetta drengur. Ég er að ræða við þig hérna um skólann og þú ert bara að baula eitthvað út í loftið um dreka og fullt af hamborgurum og eitthvað"!!!
Þá leit hann rólega á mig og sagði spekingslega:
" Ég talaði aldrei um fullt af hamborgurum, ég var bara að tala um eitthvað smávegis sko"

Ég ákvað að þetta væri ekki leikvöllur fyrir mig og gafst upp á alvarlegum umræðum.
Gleðilegt vor!

3 ummæli:

Unknown sagði...

"Gormurinn" góður, það er ekkert verið að flækja málin með óþægilegum rökræðum. kv.pa.

Nafnlaus sagði...

Góður. Og ekki leggja manni orð í munn.
Sigga móður......

Nafnlaus sagði...

Þetta er bara snillingur, enda kominn af góðu kyni.. ;o)

Sóley