Mig dreymdi að ég tók vinstri baugfingurinn af manninum mínum.
Þetta er fingurinn sem hann hefur giftingahringinn á, en í draumnum var hann ekki með hringinn og það blæddi ekkert.
Ég var í algjöru panikki allan drauminn að reyna að koma fingrinum í poka með vatni og klaka og hringja í lækni og vasast og vesenast til að reyna að bæta fyrir það sem ég hafði gert. Maðurinn minn var hins vegar alveg skítslakur. Meiddi sig ekkert og var eiginlega bara alveg sama.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
http://www.draumur.is/draumabok/?i=279
Samkvæmt mínu hyggjuviti og draumaráðningum þá getur þetta verið fyrir ástvinamissi og er missirinn sárari eftir því hvað blæðir mikið. Hlýt að telja að ekkert blóð tákni langþráðan dauða eða eitthvað sem ekki skiptir miklu máli. Ástarkveðja. Mammamma.
Óþægilegur draumur..
Sóley
Skrifa ummæli