Amma mín í Víkinni hefði orðið 79 ára í dag hefði hún lifað.
Ég man eftir ömmu. Hún var ofsalega góð og mjúk. Ég var bara 14 þegar hún dó. Ég sakna hennar oft, og ég hugsa stundum hvað hefði verið gaman að geta sýnt henni börnin mín. Ég held að hún hefði orðið stolt af mér.
Þetta er skrýtinn dagur.
Margt sem fer í gegnum kollinn minn.
Kannski er best að segja bara sem minnst.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Elsku Þóra.
Já, þetta er sorglegur dagur.
Samúðarkveðja, Sigga móður......
Ég held ég viti hvað þú átt við með skrýtinn dag..
Þetta er skrýtin aðstaða..
Já ég hugsa oft eins og þú Þóra mín. Mikið lifandis ósköp hefði hún elskað og knúsað öll þessi yndislegu langömmubörn sem hún á. Ég vil trúa því að hún sjái þau öll, alltaf og vaki yfir velferð þeirra eins og hún vakti yfir sínum. Hún var mikil móðir og amma og mér sérlega kær. Ástarkveðja frá mömmömmu.
Skrifa ummæli